Hraunvangur 1-3 Hafnarfirði

Við hlið Hrafnistu í Hafnarfirði standa tvö fjölbýlishús með samtals 64 þjónustu- og öryggisíbúðum. Húsin standa á fallegum stað og víða er fagurt útsýni út á sjóinn. Íbúðirnar er fyrir 60 ára og eldri og byggðar með þarfir eldri borgara í huga. Hugsunin er að íbúar geti búið sem lengst í sömu íbúð, með því að nýta sér þá aðstöðu sem er til staðar auk þess að hafa aðgang að fjölbreyttri þjónustu á vegum Hrafnistu. Innangengt er úr íbúðunum yfir á Hrafnistu í gegnum bílageymslu en stæði í bílageymslu fylgir hluta af íbúðunum. Íbúðirnar eru tveggja eða þriggja herbergja, rúmgóðar og bjartar.
Íbúðunum fylgir geymsla sem er innan íbúðar eða á gangi við hið hennar.Parket er á gólfum nema á baði er öryggisgólfdúkur. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi. Innfelld halogenlýsing er í loftum.  

 Leiguíbúðir við Hraunvang

 
Útleiga og leiguverð:
Íbúðirnar eru leiguíbúðir og leigðar út með eða án 30% afnotaréttar. Greiðsla fyrir afnotarétt er verðtryggð og verður endurgreidd við flutning (að frádreginni 2% árlegri fyrningu) samkvæmt nánari reglum þar um. Sjá meðfylgjandi verðskrá.

 
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjómannadagsráðs alla virka daga milli 9-16 í síma 585-9301/585-9302 eða sendið tölvupóst á asgeir.ingvason@hrafnista.is eða jona.karlsdottir@hrafnista.is.
 
Hægt er að panta tíma fyrir skoðun íbúða á sama stað. Auk þess bendum við á heimasíðuna www.hrafnista.is. og síma 585-9500.
 

Hér má sjá myndir af þjónustuíbúðum við Hraunvang í Hafnarfirði

 



Boðaþing 22-24

Hraunvangur 1-3

Brúnavegur 9

Hraunborgir

Minningarkort



Sjómannadagsráð | Kt. 570269-2679 | Hrafnistuheimilið við Brúnaveg | 585-9301 |