er staðsett á 1. hæð í þjónustumiðstöðinni. Þar er hægt að kaupa hádegismat og síðdegiskaffi. Mat um helgar og á kvöldin er hægt að fá sendan heim frá Hrafnistu. Tekið er við pöntunum í síma 585 9575.
Húsvörður er Víglundur Sívertsen og hann sér um allt viðhald sameignar og á fastabúnaði íbúða. S: 693-9509.
Öryggisvöktun er innifalin í öryggisíbúðunum. Þjónustufulltrúi afhendir íbúum þráðlausa öryggishnappa þegar þeir flytja inn.
DAS-klúbburinn er starfræktur fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða á lóðum Hrafnistu. Meðlimir í honum hafa aðgang að ýmiskonar íþróttastarfi, meðal annars hópleikfimi, vatnsleikfimi, boccia, gönguklúbbi og ýmsu fleiru. Auk þess hafa meðlimir aðgang að vinnustofu á Hrafnistu á opnunartíma og þar er hægt að leggja stund á margvíslegt handverk undir handleiðslu leiðbeinanda eða bara nýta sér aðstöðuna. DAS-klúbbsfélagar fá afslátt af skemmtunum á vegum Hrafnistu eins og Haustfagnaði og Þorrablóti og veglega afslætti hjá völdum fyrirtækjum í bænum. Gjaldið fyrir DAS-klúbbinn er 900.- kr
Hjúkrunarfræðingar Hrafnistu eru með viðtalstíma einu sinni í viku. Þar er t.d. hægt að fá skipt á sárum, mæla blóðþrýsting, fá ráðgjöf og fleira.
Sjúkraþjálfun er í boði fyrir íbúa þjónustu- og öryggisíbúða gegn tilvísun frá lækni. Síminn er 531-4015.
Sundlaug og heitir pottar eru í þjónustumiðstöð. Sími sundlaugar er 531-4015
Hárgreiðslustofa er á 1. hæð þjónustumiðstöðvarinnar og stendur íbúum opin. Tímapantanir eru á staðnum og er greitt samkvæmt verðskrá. Opnunartími er þriðjudaga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 10:00 – 17:00. Tímapantanir í síma: 531-4016.
Fótaaðgerðastofa er í kjallara þjónustumiðstöðvar og stendur íbúum einnig til boða. Tímapantanir eru á staðnum og er greitt samkvæmt verðskrá. Opnunartími er þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga frá kl. 9:00 – 17:00 og á föstudögum frá kl. 9:00 – 12:00. Tímapantanir í síma: 531-4017.
Félagsmiðstöðin Boðinn er staðsett í þjónustumiðstöðinni. Íbúar hafa aðgang að allri dagskrá sem er í boði þar. Þjónustumiðstöðin er opin frá kl. 9:00 – 16:00 alla virka daga og er opin fólki á öllum aldri óháð félagsaðild. Dagskrá félagsheimilisins er auglýst á töflu í anddyri þjónustumiðstöðvarinnar.
Sími : 531-4000/512-7400
Félagsleg heimaþjónusta er veitt frá Félagsþjónustu Kópavogs, sími 570-1500.