Þröstur V. Söring framkvæmdastjóri fasteignasvið Sjómannadagsráðs skrifar grein á visir.is um nýlegar uppbyggingaráætlun Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og DAS íbúða, þar sem horft er til uppbyggingar og þróunar næstu 15 ára.
„Við munum öll þann tíma í lífi okkar þegar ekkert var mikilvægara en að vera eins og allir hinir. Fyrir eina kynslóð var t.d. þráin eftir að eignast Millet-úlpu og uppháa Adidas körfuboltaskó djúp og innileg. Án þess fatnaðar myndi enginn verða hrifinn af okkur og jafnvel hætta á að verða fyrir stríðni jafnaldra. Á næsta skeiði lífsins snérist þetta við hjá okkur. Við hófum leitina að okkur sjálfum og ekkert var verra en að vera alveg eins og hinir. Síðan komst á jafnvægi og lífið tók við.“
Greinina má lesa hér á visir.is