Haustið 2025 var samþykkt að fara ekki í dýrar og flóknar endurbætur á sundlauginni í Hrafnistu, Hraunvangi. Ákveðið var fylla upp í laugina og færa iðjuþjálfunina, sem verið hefur í mörgum herbergjum á jarðhæðinni, í salinn sem yrði til við breytingarnar.
Nú er hægt að segja að endurbótunum sé að mestu lokið og flutti iðjuþjálfunin alla sína starfsemi af jarðhæðinni, upp í nýju aðstöðuna.
Mikil ánægja er með breytinguna hjá starfsfólki og þeim sem nota aðstöðuna. Þarna er hægt að mála, sauma, lesa, spila, prjóna og margt, margt fleira.
Ein mesta breytingin er, að nú er þessi starfsemi komin upp á fyrstu hæðina, þar sem öll önnur þjónusta er til staðar og því er aðgengi orðið margfalt betra. Það hefur orðið til þess að þeim hefur fjölgað sem tylla sér niður í kaffisopa og spjall í sólskálanum.
Við óskum Hrafnistu Hraunvangi til hamingju með þessa glæsilegu nýju aðstöðu.
Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndir frá framvindunni.



