Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur á sunnudaginn og var dagskrá dagsins hefðbundin. Dagurinn hófst með því að lagðir voru blómakransar að minnismerki um óþekkta sjómanninn og við Minningaröldur Sjómannadagsráðs að viðstöddum forseta Íslands og heiðursverði frá lögreglunni og áhöfninni af danska herskipinu Vædderen. Að því loknu var haldið til messu í Dómkirkjunni. Eftir guðsþjónustuna var haldið í Hörpu þar sem sjómenn voru heiðraðir við hátíðlega athöfn. Í ár voru það þeir: Gestur Helgason, Jón Páll Ásgeirsson, Víðir Jónsson, Bergsveinn Þorkelsson, Kristján Sigurbjörnsson, Ólafur Pálsson og Jón Már Jakobsson sem voru heiðraðir.














Um morguninn og fram eftir degi var mikið um að vera við höfnina í Reykjavík. Veðrið lék um hátíðargesti og var fjölmenni sem naut fjölbreyttrar dagskrár sem höfðar til allrar fjölskyldunnar.











Í Hafnarfirði var fjölmenni við höfnina og naut fólk blíðviðrisins og skemmtiatriðanna. Þar voru þeir Jón Helgi Jónsson, Oddur Sævar Andersson og Vignir Ólafsson heiðraðir.















Sjómannadagsráð sendir kærar þakkir til allra þeirra sem komu að skipulagningu dagsins og gerðu hann ógleymanlegan.