1937 – 1945

1946 – 1956

1957 – 1967

1968 – 1980

1981 – 1999

2000 – 2025

2000 – 2025

Á þessum tveimur áratugum jókst starfsemi dótturfélaga Sjómannadagsráðs töluvert. Haldið var áfram með að þróa hugmyndir um þjónustukjarna fyrir eldra fólk og hugtakið lífsgæðakjarni varð til hjá Sjómannadagsráði. Hafist var handa við að þróa umhverfi og starfsemi sem styður við sjálfstæða búsetu eldri borgara. Hátíðarhöld á sjómannadaginn voru áfram vegleg og vel sótt.

* 2000

Lífsgæðakjarninn hefur verið lengi í þróun hjá Sjómannadagsráði þar sem grunn hugmyndin er að skapa umhverfi sem styður við heilsu og vellíðan aldraðra. Árið 2000 hélt Sjómannadagsráð áfram að þróa hugmyndafræðina um skipulagðan kjarna með fullkominni þjónustu fyrir eldri borgara og árið 2000 fór félagið í viðræður við nokkur sveitarfélög um að fá úthlutað landsvæði fyrir þessa kjarna. Kjarninn var hugsaðu sem samblanda af séreignaíbúðum og leiguíbúðum með fullri þjónustu fyrir þá sem þyrftu á að halda. Þar var hægt að sækja læknisþjónustu, hjúkrunarþjónustu, fá heimahjúkrun, fæði og félagslega þjónustu. Kjarnann átti að tengja við útivistarsvæði. Auk þessu yrðu hjúkrunarheimili og dvalarheimili aldraðra á svæðinu. Í nágrenninu áttu að vera íbúðir fyrir aldraða sem gátu sótt þjónustuna í kjarnann.

Þetta ár hófust framkvæmdir á Hrafnistu í Reykjavík við að endurgera herbergin, m.a. með því að breyta einstaklingsherbergjum úr 10 í 20 fermetra rými með salerni.

Fyrstu hugmyndir um lífsgæðakjarna
* 2010

Hrafnista í Boðaþingi Kópavogi tekur til starfa og DAS íbúðahús með 95 öryggis- og þjónustuíbúðum að rísa og eru húsin tengd með undirgangi við þjónustumiðstöðina, með fjölbreyttri þjónustu í boði og náttúruna í bakgarðinum. Fyrstu íbúðirnar fóru í leigu í nóvember. Hjúkrunarheimilið var hannað og teiknað eftir danskri hugmyndafræði, Leve og bo, þar sem megin boðskapurinn er að virða og viðhalda sjálfsákvörðunarrétti íbúanna, viðhalda og efla styrkleika þeirra ásamt þátttöku í hinu daglega lífi á heimilinu. 

Haldið er áfram með endurbætur á Hrafnistu í Laugarási, þrátt fyrir krefjandi efnahagsástand. 

* 2017

Fyrsta skóflustungan var tekin að nýju hjúkrunarheimili við Sléttuveginn og þar með hófst uppbygging á 21 þúsund fermetra íbúðahúsnæði og þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara.

Hálfdan Henrysson tók við keflinu sem formaður Sjómannadagsráðs. Hálfdan kom inn í stjórnina árið 1993 og hafði gengt þar stöðum ritara, gjaldkera og varaformanns.

Ráðstefna um lífsgæði aldraðra fór fram þriðjudaginn 21. nóvember 2017  í Silfurbergi í Hörpu. Ráðstefnan var haldin í tilefni af 80 ára afmæli Sjómannadagsráðs og því að 60 ár voru liðin frá vígslu Hrafnistu í Reykjavík.

* 2019

Sjálfseignarstofnunin Skógarbær og Sjómannadagsráð undirrituðu samning um að Hrafnista tæki formlega við rekstri hjúkrunarheimilisins Skógarbæjar þann 2. maí  2019.

Nýtt og stórglæsilegt eldhús fyrir starfsemi Hrafnistu var opnað þetta ár þar sem loks var hægt að matreiða máltíðir fyrir öll Hrafnistuheimilin á höfuðborgarsvæðinu. Gólfflötur nýja eldhússins var stækkaður um 400 fermetra og varð í heild 1.050 fermetrar, skipulagi var breytt og nær öll tæki til starfseminnar endurnýjuð.

Það reyndi á útsjónarsemi allra þeirra sem komu að verkefninu enda ekki einfalt mál að endurnýja og breyta rúmlega sextíu ára húsnæði án þess að fórna upprunalegum stíl og yfirbragði. Umsjón með verkefninu var í höndum starfsfólks fasteignadeildar Sjómannadagsráðs, THG arkitekta og verkfræðihönnuða Mannvits og Eflu. JE Skjanni var aðalverktaki verkefnisins auk undirverktaka frá Rafmiðlun, Blikksmiðnum, Landslögnum, Ísfrosti, Borgarvirki, Fastusi, Bakó Ísberg og Nesvélum.

 

* 2020

Hjúkrunarheimili Hrafnistu, íbúðarhús DAS og glæsileg þjónustumiðstöð fyrir eldri borgara - eða lífsgæðakjarni - voru tekin í notkun á Sléttuveginum árið 2020. Með tilkomu þessa nýja hjúkrunarheimilis voru hjúkrunarrými Hrafnistu orðin um 800. Lífsgæðakjarninn sem Sjómannadagsráð og samstarfsaðilar, ríki og borg, byggðu fékk nafnið Sléttan.

Hönnun og bygging heimilisins, sem var í höndum THG arkitekta, gekk hratt fyrir sig og ýmsar nýjungar einkenndu hjúkrunarheimilið hvað varðar hönnun, skipulag og rekstur. Margar þessara nýjunga voru þróaðar í samráði við Hrafnistu og tóku mið af áratuga langri reynslu við þjónustu og umönnun. Fimm árum síðar var nýtt íbúðarhús DAS byggt og tekið í notkun á Skógarveginum.

María Fjóla Harðardóttir var ráðin forstjóri Hrafnistuheimilanna í september. María hafði starfað hjá Hrafnistu frá árinu 2015 sem framkvæmdastjóri heilbrigðissviðs.

* 2021

Aríel Pétursson tók við formennsku Sjómannadagsráðs þann 1. september, í stað Hálfdans Henryssonar sem hafði starfað með Sjómannadagsráði í 34 ár. Aríel var varaformaður Sjómannadagsráðs frá aðalfundi ráðsins 2021. 

* 2023

Þröstur V. Söring var ráðinn framkvæmdastjóri eignasviðs Sjómannadagsráðs til að hafa umsjón með framkvæmdum og uppbyggingu á húsnæði Sjómannadagsráðs.

Þann 6. maí var fyrsta skóflustungan tekin að stækkun hjúkrunarheimilis Hrafnistu Nesvöllum í Reykjanesbæ og hafist handa við að reisa um 3.200 fermetra byggingu á þremur hæðum á lóðinni við núverandi heimili og bæta við herbergjum fyrir 60 íbúa. Í kjölfarið var hjúkrunarheimilið Hlévangur aflagt og þrjátíu íbúar flutti yfir til Nesvalla í kjölfar stækkunarinnar. 

* 2024

Hafist var handa við að móta Uppbyggingaráætlun Sjómannadagsráðs til 2040. Áætlunin var unnin til að setja fram skýra framtíðarsýn um þjónustu og búsetu fyrir eldra fólk og gerð í víðtæku samráði við stjórnendur, starfsfólk, íbúa og hina ýmsu hagsmunaaðila. 

Forsetaframbjóðendum var boðið að takast á í sjómennskukeppni. Keppt var í greinum tengdum sjómennsku eins og flökun og hnýtingum og farið í spurningakeppni. Markmiðið var að fá frambjóðendur til að tengja sig grundvallaratvinnugrein Íslands í gegnum aldirnar, sjávarútvegi.

* 2025

Vegleg ráðstefna var haldin í Hörpu með yfirskriftina Öldrunarþjónusta á gervigreindaröld. Þar var uppbygging á húsum og þjónustu fyrir eldri borgara rædd og hvaða áhrif tæknin hefur á þennan málaflokk. Meðal fyrirlesara voru Arna Harðardóttir framkvæmdastjóri Helix, Kristín Sól Ólafsdóttir róbótahugbúnaðarverkfræðingur hjá F&P Robotics, Anna Björg Jónsdóttir yfirlæknir öldrunarlækninga á Landspítalanum og Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands auk annarra stjórnenda hjá Hrafnistu og Sjómannadagsráði. Dagskrána má finna í heild sinni hér

Þrjár nýjar vefsíður á vegum Sjómannadagsráðs opnuðu þetta ár: Ný vefsíða Sjómannadagsráðs, einnig  Uppbygginaráætlun Sjómannadagsráðs - þar sem framtíðarsýn félagsins og fyrirhuguð uppbygging er kynnt - og svo Sjómannadagsblaðið, sem kom þetta ár í fyrsta sinn út á rafrænu formi á vefsíðunni sjomannadagurinn.is. Sjómannadagsblaðið hefur verið gefið út á hverju ári síðan 1938 í tengslum við sjómannadaginn.