Sjómannadagurinn

Sjómannadagurinn hefur verið haldinn hátíðlegur á Íslandi síðan 1938 til að heiðra íslenska sjómenn og mikilvægi sjómennskunnar fyrir þjóðina. Fyrsti sunnudagurinn í júní er helgaður þeim sem hafa lagt líf sitt í hættu á sjónum og stuðlað að velmegun landsins með starfi sínu.

Dagurinn er haldinn hátíðlegur víða um land með fjölbreyttum viðburðum: sjómannamessum, kappróðrum og minningarathöfnum þar sem kransar eru lagðir til heiðurs látnum sjómönnum. Í sjávarbyggðum má finna fjölskylduhátíðir og skemmtanir sem minna okkur á tengsl þjóðarinnar við sjóinn og mikilvægi hans í sögu okkar.

Sjómannadagurinn er ekki aðeins tækifæri til að minnast þeirra sem fórnuðu lífi sínu á sjó, heldur einnig til að þakka þeim sem enn stunda þetta krefjandi og nauðsynlega starf. Dagurinn minnir okkur á að án sjómanna væri sagan okkar og samfélagið mjög ólíkt því sem það er í dag.

Sjómannadagsblaðið

Á heimasíðu sjómannadagsins – sjomannadagurinn.is – er að finna dagskrá sjómannadagsins og nýja rafræna útgáfu Sjómannadagsblaðsins. Auk þess er að finna á síðunni hlaðvarpsþættina Sjókastið þar sem Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, ræðir við fólk sem tengist sjónum á einn eða annan hátt.

Sjómannadagsblaðið hefur verið gefið út árlega síðan 1938, og kemur ávalt út á sjómannadaginn. Blaðið hefur fjallað um fjölbreytt málefni sjómannastéttarinnar og uppbyggingu í málefnum aldraðra. Í blöðunum er að finna viðtöl við fjölda fólks sem tengist sjómennsku eða margvíslegu starfi Sjómannadagsráðs í gegnum tíðina. Árið 2025 var útgáfa blaðsins færð í nútímalegri búning og kemur nú einungis út á rafrænu formi á vefsíðunni sjomannadagurinn.is.

Eldri Sjómannadagsblöð má finna hér á vefsíðunni tímarit.is.