Í gær fór fram aðalfundur Sjómannadagsráðs. Aðalfund sitja fulltrúar í fulltrúaráði Sjómannadagsráðs og eru þeir skipaðir af þeim félögum sem standa að ráðinu. Í dag eru það VM, félag vélstjóra og málmtæknimanna, Sjómannafélag Íslands og Félag skipstjórnarmanna.
Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf og kosning formanns Sjómannadagsráðs. Hann er kosinn til fjögurra ára í senn og var Aríel Pétursson endurkjörinn sem formaður.
Við það tilefni þakkaði Aríel fulltrúaráðinu traustið og sagði ennfremur: „Sjómannadagsráð eru einstök samtök með djúpa sögu, sterka arfleifð og mikilvægt samfélagslegt hlutverk. Við byggjum á merkri sögu sem tengist sjómannastéttinni, samstöðu og samfélagslegri ábyrgð, en berum jafnframt ríka ábyrgð á mikilvægri þjónustu við eldri borgara.
Það eru forréttindi að fá að leggja sitt af mörkum til þessarar vegferðar með þessu öfluga fólki. Framundan eru stór verkefni og ég hlakka til áframhaldandi samstarfs með fulltrúaráði, stjórn og því frábæra starfsfólki sem stendur að baki starfsemi Sjómannadagsráðs á hverjum degi.“


