Aldrei of seint að byrja að hreyfa sig

 „Hreyfing skiptir alltaf máli, ekki bara á efri árum, en þá er hún ekki minna mikilvæg,“ segir Ágústa Sigurjónsdóttir, sjúkraþjálfari hjá Öldu sjúkraþjálfun sem er staðsett í lífsgæðakjarna DAS á Sléttuveginum. Hún bætir því við að með því að hreyfa sig reglulega getum við viðhaldið færni sem annars getur annars tapast með aldrinum. „Það þarf ekki að vera mikið, heldur bara göngutúr daglega.“

Guðrún Árnadóttir, íbúi á Skógarveginum, segir að hreyfing hafi skipti sköpum í að vinna gegn beinþynningu. Eftir að hafa stundað reglulega hreyfingu, samhliða því að taka beinþéttnilyf hafi hún upplifað stórkostlegan árangur. „Þá kom í ljós að lyfin og líkamræktin mín höfðu látið þetta ganga til baka!“ Núna er hreyfing stór hluti af daglegu lífi hennar.

Sigrún Erlendsdóttir íbúi á Skógarveginum segir að daglegir göngutúrar hafi mjög jákvæð áhrif á líf hennar. „Ég er miklu glaðari og gleðin er svo mikils virði. Sérstaklega þegar maður fer að eldast.“

„Það er aldrei of seint að byrja, skiptir engu máli hvort þú sért 99 ára eða 104. Það geta allir náð árangri,“ segir Ágústa.