Á Hrafnistu eru rekin margskonar kerfi sem treysta á rafmagn og netsamband til að virka. Má t.d. nefna ýmis tölvukerfi eins og Lyfjavaka og sjúkraskráningarkerfið Sögu. Undir þetta fellur einnig sjúkrakallkerfi ásamt ýmsum fleiri kerfum. Það geta alltaf komið upp bilanir og þá er mikilvægt að raflagnir séu aðgengilegar, vel skipulagðar og merktar.
Ein af framkvæmdunum við Hrafnistu Hraunvangi í Hafnarfirði er að endurnýja og endurskipuleggja rafmagnstæknirýmin og koma þeim á einn stað á hverri hæð. Í þeim tilgangi hafa verið sett upp ný tæknirými í B-álmunni og lagnastokkar verið hreinsaðir. Nú er nú komið að því að setja nýja skápa í rýmin. Við þessa uppfærslu mun öll vinna við rafmagn og net verða skilvirkari og öruggari.
