Þann 2. september var vígsla á 64 nýjum rýmum í 4.160 m2 við hjúkrunarheimili Hrafnistu í Boðaþingi, Kópavogi að viðstöddu miklu fjölmenni. Eru þá alls 108 hjúkrunarrými á heimilinu. Húsið er allt hið glæsilegasta og var mikið um dýrðir. Þar með er lífsgæðakjarninn í Boðaþingi full risinn með hjúkrunarheimili Hrafnistu, leiguíbúðum DAS íbúða og þjónustumiðstöðinni Boðanum.
Meðal þeirra sem héldu erindi á opnunarhátíðinni í dag voru Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs, Aríel Pétursson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs, María Fjóla Harðardóttir, forstjóri Hrafnistu og Óskar Jósefsson, forstjóri Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna.





































