„Einmanaleiki er flókið fyrirbæri sem á sér mismunandi orsakir. Stundum læðist hann að okkur smám saman, eins og skuggi sem fylgir fallandi sól, en getur líka komið skyndilega og sprottið af aðstæðum sem einstaklingur hefur litla stjórn á,“ skrifar Þröstur V. Söring framkvæmdastjóri eignasviðs Sjómannadagsráðs í grein á visir.is.
Þar fjallar hann um hversu mikil áhrif samvera hefur á heilsu og líðan fólks en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) gaf fyrr á árinu út skýrslu þar sem fjallað er um einmannaleika á heimsvísu og hversu mikil og alvarleg áhrif hann hefur á heilsu fólks. Tengja má yfir 870.000 dauðsföll árlega til einmanleika.
„Samvera er því ekki bara skemmtun heldur raunveruleg heilbrigðisforvörn sem styrkir einstaklinginn – og þar með samfélagið í heild. Lífsgæðakjarnar Sjómannadagsráðs, Hrafnistu og DAS íbúða eru hannaðir með það að markmiði að byggja upp samfélag þar sem félagsleg tengsl geta myndast og blómstrað.“
Lesa má greinina í heild sinni hér á visir.is.
