Sjómannadagsblaðið í nýjum búningi

Sjómannadagsblaðið kom fyrst út á sjómannadaginn 6.júní árið 1938 og hefur komið út á hverju ári síðan þá. Blaðið var í upphafi hugsað sem málgagn sjómannastéttarinnar þar sem skrifað var um helstu baráttumál og nýjungar. Sjómannadagsblaðið hefur í gegnum tíðina fjallað um fólk og fjölbreytt málefni sem tengjast sjávarútvegi á einn eða annan hátt og gefið mikilvæga innsýn inn í þessa undirstöðu atvinnugrein þjóðarinnar. Einnig hefur mikið verið fjallað um málefni aldraðra. Sjómannadagsráð hefur staðið að útgáfu blaðsins frá upphafi.

Sjómannadagsblaðið stendur á tímamótum í ár, því ákveðið var að gefa blaðið eingöngu út á netinu á nýrri heimasíðu sjómannadagins, sjomannadagurinn.is. Þar er að finna greinar og myndbönd sem fjalla um fólk og málefni sem tengjast sjávarútvegi. Þar er einnig fjallað um ýmsa uppbyggingu í málefnum eldri borgara. Á heimasíðunni er einnig að finna Sjókastið, hlaðvarpsþætti þar sem Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs, ræðir við fólk sem tengjast sjónum á einn eða annan hátt.

Nýja Sjómannadagsblaðið: Halldór Guðmundsson arkitekt segir hér frá minnisvarðanum við leiði óþekkta sjómannsins og þegar hann fékk það hlutverk að endurgera vitann og skipuleggja umhverfi hans.