Sjómennskukeppni forsetaframbjóðenda

Forsetaframbjóðendum var boðið að takast á í sjómennskukeppni í gær. Keppt var í greinum tengdum sjómennsku eins og flökun og hnýtingum auk þess sem farið var í spurningakeppni.

Markmiðið var að fá frambjóðendur til að tengja sig grundvallaratvinnugrein Íslands í gegnum aldirnar, sjávarútvegi, sér í lagi af því tilefni að kosningar eru daginn fyrir sjómannadaginn sem nú verður haldinn í 86. sinn. Keppninni stjórnaði Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs.