Minningaröldur Sjómannadagsins
Árið 1996 reisti Sjómannadagsráð Minningaröldur sjómannadagsins í Fossvogskirkjugarði. Letrað er á þann minnisvarða nöfn drukknaðra, týndra sjómanna og annara sæfara að ósk ættingja eða útgerðar. Minnisvarðinn er sameininlegt tákn um að við munum þá alla. Á Sjómannadaginn 2007 höfðu 453 nöfn verið letruð á minningaröldurnar.
“Því ég kalla á þig með nafni”.
Og yfir land og ál
ber hið undurbjarta mál,
sem í ástúð vorsins mildar harma rótt.
Þorsteinn Hallgrímur Gunnarsson-MINNINGARSTEINN
Grein um minningaröldurnar úr Morgunblaðinu 1997
Grein um minningaröldurnar úr Morgunblaðinu 2005
Hafir þú einhverjar athugasemdir eða ábendingar vegna nafnalistans eða teljir einhvern vanti á þennan lista sem þú vilt koma á framfæri þá vinsamlegast biðjum við þig um að hafa samband við okkur á jona@hrafnista.is.