Dótturfélög Sjómannadagsráðs
Dótturfyrirtæki Sjómannadagsráð eru þó nokkur.
Ber þá helst að nefna Hrafnistu sem er nú á átta stöðum, Hrafnista í Laugarási (1957), Hrafnista í Hraunvangi (1977), Hrafnista í Boðaþingi (2010), Hrafnista Nesvöllum (2014), Hrafnista Hlévangi (2014), Hrafnista Nesvöllum (tekin í notkun 2014) Hrafnista Ísafold (2017), Hrafnista Skógarbæ (2019) og Hrafnista Sléttuvegi (2020). Sjómannadagsráð á húsnæði Hrafnistu í Laugarási og Hraunvangi, en húsnæði Hrafnistu í Boðaþingi, Garðabæ, Nesvöllum, Hlévangi, Sléttuvegi og Skógarbæ er rekið af Sjómannadagsráði. Við hjúkrunaheimilin í Boðaþingi, Skógarbæ og Nesvelli eru þjónustumiðstöðvar sem eru reknar af sveitarfélögunum. Á Sléttuvegi er einnig þjónustumiðstöð sem Hrafnista rekur fyrir Reykjavíkurborg.
Laugarásbíó er í eigu Sjómannadagsráðs. Í upphafi, árið 1957, var Laugarásbíó starfrækt í matsal Hrafnistu, en flutti í núverandi húsnæði árið 1960. Kvikmyndahúsið ehf. leigir Laugarásbíó af Sjómannadagsráði og sér um rekstur á því.
Sjómannadagsráð á Happdrætti DAS. Happdrættið var stofnað 4. apríl 1954 til uppbyggingar Hrafnistu. Frá árunum 1963-1988 fór einnig 40% af hagnaðnum í Byggingarsjóð aldraðra sem sá um að byggja dvalarheimili um land allt.
Sjómannadagsráð á auk þess Naustavör ehf. sem er einkahlutafélag og var stofnað 8. febrúar 2001. Naustavör ehf. er eigandi leiguíbúða fyrir 60 ára og eldri. Íbúðirnar eru í Hraunvangi 1-3, Brúnavegi 9, Jökulgrunni 2-6, Sléttuvegi 27 og Boðaþingi 22-24.
Sjómannadagsráð eignaðist jörðina Hraunkot (sem heitir nú Hraunborgir) árið 1964 og voru fyrstu orlofshúsin tekin í notkun árið 1974. Þjónustumiðstöðin var tekin í notkun 1982, sundlaugin tekin í notkun 1988 og Golfklúbbur Hraunborga var stofnaður 2013 .