Sjómannadagurinn 2017 í Reykjavík.
Sjómannadagurinn í Reykjavík var haldinn hátíðlegur þann 11. júní s.l.
Var þetta í áttugasta skipti sem haldið er uppá Sjómannadaginn, en hátiðardagskráin hófst við Minningaröldur Sjómannadagsráðs við Fossfvogskirkjugarð kl. 10.00 þar sem týndra drukknaðra sjómanna var minnst og síðan var haldið í Sjómannamessu í Dómkirkjunni í Reykjavík.
Eftir hádegið færðist dagskráin á Grandagarð og hófst þar Hátíðardagskrá Sjómannadagsins kl. 14.00 þar sem 4 sjómenn voru heiðraðir. Karlakór Kjalnesinga söng og kynnir eins og undanfarin ár var Gerður G. Bjarklind. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir , Sjávarútvetgsráðherra futti ávarp og Halfdán Henrysson formaður Sjómannadagsráðs hélt utan um heiðrun sjómanna.
Eftirtaldir voru heiðraðir í ár:
- Albert Sigtryggsson – Sjómannafélag Íslands
- Björn Árnason – Sjómannafélag Íslands
- Gunnar Gunnarsson – Félag skipstjórnarmanna
- Sveinn Kristinsson – Félag Vélstjóra og Málmtæknimanna.
Einnig voru veitt verðlaunin Neistinn frá félagi vélstjóra- og málmtæknimanna fyrir góða umgengni og öryggi í vélarrúmi. Neistinn hlaut Ólafur Már Eyjólfsson yfirvélstjóri á bv. Helgu Maríu AK-16.
Sjá einnig myndband