Reykjavíkurborg hefur gert samning við Sjómannadagsráð um að hafa umsjón með undirbúningi, hönnun og byggingaframkvæmdum hjúkrunarheimilis á Sléttuvegi í Reykjavík. Ölduvör ehf. sem er dótturfélag Sjómannadagsráðs sér um uppbyggingu á Sléttuveginum. Á svæðinu verða einnig byggðar íbúðir fyrir aldraða og þjónustumiðstöð.
Sjómannadagsráð hefur ráðið Gunnar Örn Steingrímsson byggingatæknifræðing til að hafa umsjón með undirbúningi, hönnun og byggingaframkvæmdunum. Gunnar hefur langa reynslu af byggingaframkvæmdum og eftirliti. Áður starfaði hann hjá Verkfræðistofu Stanleys Pálssonar við byggingaeftirlit og síðar hjá Eykt ehf við verkefnastýringu byggingaframkvæmda.