Aðalfundur Sjómannadagsráðs var haldinn þriðjudaginn 7. maí 2019 á Hrafnistu Laugarási. Venju samkvæmt voru hefðbundin aðalfundarstörf á fundinum og voru þau afgreidd fljótt og vel.

Í stjórn félagsins voru þeir Sigurður Ólafsson ritari og Oddur Magnússon varagjaldkeri endurkjörnir, en áfram sitja í stjórninni þeir Hálfdan Henrysson formaður, Guðjón Ármann Einarsson varaformaður og Jónas Garðarsson gjaldkeri.

Á fundinum var eftirfarandi ályktun samþykkt:

ÁLYKTUN
Aðalfundur Sjómannadagsráðs, haldinn að Hrafnistu Laugarási þriðjudaginn 7. maí 2019, skorar á ríkisstjórn Íslands að uppfylla þegar í stað eigin áætlanir um að bæta rekstrarumhverfi hjúkrunarheimila á Íslandi.

Í stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar segir orðrétt: „Einnig verður hugað að því að styrkja rekstrargrundvöll hjúkrunarheimila…“

Hjúkrunarheimili skipa mikilvægan og stóran sess í heilbrigðisþjónustu landsins. Á þeim tveimur fjárlagaárum sem núverandi ríksstjórn hefur haldið við stjórnartaumana hefur rekstrargrunnur hjúkrunarheimila verið skertur bæði árin, en ekki styrktur eins og segir í stjórnarsáttmálanum.

Skerðing fjárframlaga á rekstrargrunni hjúkrunarheimila er ómakleg aðgerð enda eru þjónustuþegar hjúkrunarheimila í hópi þeirra íbúa landsins sem mesta þörf hafa fyrir hjúkrun og umönnun og hafa heilsu sinnar vegna litla burði til að berjast fyrir málstað sínum á opinberum vettvangi.

Ályktun stjórnar Sjómannadagsráðs samþykkt á aðalfundi 7. maí 2019.

Við lok fundarins var Birni Pálssyni, sem hefur stýrt aðalfundum Sjómannadagsráðs af mikilli röggsemi í fjölda ára, þökkuð góð störf, en hann tilkynnti stjórninni þessi fundur var seinasti aðalfundurinn undir sinni stjórn.

 

     

  

      

Pin It on Pinterest

Share This