Á sjómannadaginn, 5. júní sl., færði Guðmundur H. Garðarsson Sjómannadagsráði málverk að gjöf sem ber nafnið „STJÁNI BLÁI“, eftir Finn Jónsson, til minningar um eiginkonu sína Ragnheiði Guðrúnu Ásgeirsdóttur.
Við þökkum Guðmundi kærlega fyrir þetta fallega málverk en það hangir uppi í Skálafelli, sem er kaffihúsið okkar hér á Hrafnistu í Reykjavík.
Meðfylgjandi mynd er tekin þegar Guðmundur Hallvarðsson, formaður Sjómannadagsráðs, veitti málverkinu viðtöku frá Guðmundi H. Garðarssyni.