Fyrir um 20 árum síðan hóf Sjómannadagsráð að byggja leiguíbúðir fyrir eldra fólk í öruggara umhverfi og með betra aðgengi að þjónustu og stuðningi við búsetu, en annars er kostur á. Tilgangurinn er að gera fólki kleift að búa á eigin vegum sem allra lengst.
 
Það er því mikið fagnaðarefni fyrir okkur að fyrsti íbúinn í leiguíbúðum Naustavarar hafi nú náð 100 ára aldri og búi ennþá í eigin íbúð.
 
Við sendum árnaðaróskir til Guðrúnar Helgadóttur frá Kollsvík í Rauðasandshreppi, sem fæddist 10. október 1919 og varð því 100 ára í seinustu viku. Guðrún býr í dag í íbúð Naustavarar á Brúnavegi 9 í Reykjavík.

Pin It on Pinterest

Share This