Upplifðu jólastemminguna með tónlist, súpu og jólasveinum laugardaginn 30. nóvember kl. 17:00 á Miðbakka Reykjavíkurhafnar
Íslenskir sjómenn sem komu í höfn í Hamborg eftir seinna stríð elduðu fiskisúpu handa svöngu fólki meðan landað var úr togaranum þeirra. Sem þakklætisvott komu hafnaryfirvöld í Hamborg á þeirri hefð árið 1965 að senda jólatré til Reykjavíkurhafnar sem stendur við höfnina yfir hátíðarnar.
Ekki er lengur siglt með grenitréð frá Þýskalandi vegna umhverfissjónarmiða, og hafa Faxaflóahafnir þess vegna keypt tré hjá Skógræktinni í seinni tíð.
• Jólakveðja frá Faxaflóahöfnum.
• Dr. Sverrir Schopka segir frá sögu Hamborgartrésins
• Sendiherra Þýskalands, Clarissa Duvigneau, tendrar ljósin á Hamborgartrénu.
• Jólasveinar sigla inn í gömlu höfnina á Magna og leggjast að Miðbakkanum, spjalla við börnin
og leiða gesti svo að fiskisúpukötlunum í nýju húsi Landsbankans í Reykjastræti 6.