Sjómannadagsráð og Hrafnista hafa frá því í maí 2019 séð um rekstur Skógarbæjar í samstarfi við Reykjavíkurborg en munu nú að fullu taka formlega við stjórn Skógarbæjar frá og með 1. maí 2022.

Í mars 2019 undirritaði sjálfseignastofnunin Skógarbær, sem átti og rak samnefnt hjúkrunarheimili við Árskóga í Reykjavík, samning við Sjómannadagsráð, eiganda Hrafnistu, um að Hrafnista tæki formlega við rekstri hjúkrunarheimilisins þann 2. maí 2019. Rekstur og skuldbindingar starfseminnar hvíldu áfram hjá Skógarbæ, en Hrafnista tók yfir að stjórna og reka hjúkrunarheimilið.

Á samningstímabilinu, sem var til að byrja með til ársloka 2020, var Skógarbær sjálfstæður hluti rekstrarsamstæðu Sjómannadagsráðs. Í samningnum fólst einnig nýting og rekstur á hluta af húsnæði félagsmiðstöðvarinnar Árskóga sem samtengd er hjúkrunarheimilinu og rekin er af Reykjavíkurborg.

Skógarbær er hjúkrunarheimili skammt frá Mjódd í Reykjavík, stofnsett árið 1997 með 81 hjúkrunarrými. Þar er meðal annars sérstök þjónusta fyrir unga hjúkrunaríbúa. Aðilar og stofnendur að sjálfseignarstofnuninni voru Reykjavíkurborg, Rauði Krossinn í Reykjavík og Efling stéttarfélag.

Efst í huga Sjómannadagsráðs og Hrafnistu er þakklæti í garð Reykjavíkurborgar fyrir það traust sem borgin sýnir samtökunum með það hlutverk að annast umönnun íbúa ásamt því að halda utan um rekstur og fasteign Skógarbæjar. Samstarfið við Reykjavíkurborg hefur verið gríðarlega gott og nýjasta afurð þessa farsæla samstarfs er lífsgæðakjarninn á Sléttuvegi sem tók til starfa í febrúar árið 2020.

Sjómannadagsráð og Hrafnista eru full tilhlökkunar fyrir komandi tímum og hyggjast ráðast í stórhuga framtíðaruppbyggingu á svæðinu á fjölþættri þjónustu við aldraða, með fulltingi Reykjavíkurborgar sem hefur margsýnt áhuga sinn á málefnum eldri borgara í verki. Eins og ávallt verður lögð áhersla á að veita íbúum í Skógarbæ góða þjónustu eftir gildum og hugsjónum Sjómannadagsráðs og Hrafnistu, með þeim dýrmæta mannauði sem starfar í Skógarbæ.

Það eru sannarlega spennandi tímar framundan og framtíð Skógarbæjar er björt. Það er mikið tilhlökkunarefni að gera Skógarbæ að enn betra heimili til að búa á í samráði og samvinnu við íbúa Skógarbæjar, aðstandendur og starfsfólk.

Pin It on Pinterest

Share This