Skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn í Reykjavík sunnudaginn 6. júní hefur verið aflýst í annað sinn á tveimur árum vegna ráðstafana í sóttvörnum sem gilda um fjöldasamkomur. Þetta er í annað sinn í áttatíu og fjögurra ára sögu ráðsins sem dagskránni er aflýst, en sjómannadagurinn var fyrst haldinn 1938. Einnig fellur dagskrá Hátíðar hafsins niður, sem halda átti 5. og 6. júní við Gömlu höfnina. Engin breyting verður á útgáfu Sjómannadagsblaðsins og verður 84. árgangi blaðsins dreift til viðtakenda í vikunni fyrir sjómannadaginn.

Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins hefur allt frá árinu 1938 gengist fyrir skipulagðri dagskrá á sjómannadaginn með ýmsum föstum dagskrárliðum. Áfram verður stefnt að því að gefa sjómannadeginum þann verðuga sess sem honum ber. Engu að síður er stefnt að því að halda minningarathöfn um drukknaða sjómenn og árlega sjómannamessu í Dómkirkjunni. Meiri óvissa er hinsvegar um hátíðalega athöfn þar sem fram fer heiðrun sjómanna.

Árlega hefur Sjómannadagsráð jafnframt gengist fyrir fjölskylduhátíð á sjómannadaginn við Gömlu höfnina í Reykjavík með ýmsum leikjum og þrautum. Undanfarin átján ár hefur sá hluti hátíðarhaldanna verið efldur með samstarfi við Faxaflóahafnir og Brim með veglegum tveggja daga hátíðarhöldum undir merki Hátíðar hafsins á gamla hafnarsvæðinu við Grandagarð. Hátíð hafsins er auk dagskrár Menningarnætur tvímælalaust einn helsti árlegi borgarviðburðurinn. Á hafnarsvæðið leggja allt að 40 þúsund gestir leið sína ár hvert um sjómannadagshelgina til að upplifa skemmtun fyrir alla fjölskylduna þar sem hægt er að kynnast ýmsu sem tengist lífríki sjávarins, sjómennsku, verðmætasköpun og öðru er við kemur mikilvægi sjávar- og hafnarstarfsemi eins og hægt er að kynna sér á vef hátíðarinnar, hatidhafsins.is. Vegna takmarkana sem nú gilda í sóttvarnarmálum um návígi fólks verður ekki af hátíðinni, en aðstandendur hennar eru staðráðnir í að taka upp þráðinn á ný að ári með veglegri dagskrá á hafnarsvæðinu.

Pin It on Pinterest

Share This