Reykjavíkurborg og Sjómannadagsráð, eigandi Hrafnistu, undirrituðu í dag samning um rekstur hjúkrunarrýma og dagdvalar við Sléttuveg í Reykjavík. Áður hafði borgin samið við Velferðarráðuneytið um byggingu hjúkrunarheimilisins og leitað í kjölfarið til Sjómannadagsráðs og Hrafnistu um að hafa umsjón með framkvæmdinni fyrir sína hönd.

Reykjavíkurborg felur Hrafnistu rekstur á 99 hjúkrunarrýmum á fimm hæðum við Sléttuveg í Fossvogi. Hrafnista skuldbindur sig til að reka heimilið á sem hagkvæmastan hátt, en þó alltaf með markmið Hrafnistu í huga um andlega, líkamlega og félagslega vellíðan íbúa. Einnig verða gildi og stefna Reykjavíkurborgar í þjónustu við eldri borgara og mannréttindastefna Reykjavíkur höfð að leiðarljósi.

Samhliða hjúkrunarheimilinu reisir Sjómannadagsráð glæsilega þjónustumiðstöð sem sambyggð verður hjúkrunarheimilinu. Í þjónustumiðstöðinni mun Hrafnista starfrækja 30 dagdvalarrými fyrir Reykjavíkurborg.  Auk þess verður í þjónustumiðstöðinni ýmis þjónusta sem nýtist bæði íbúum í hverfinu og íbúum hjúkrunarheimilisins, svo sem hárgreiðslustofa, fótsnyrtistofa, kaffihús, samkomusalir, sjúkraþjálfun og líkamsrækt.

Hrafnista hefur yfir 60 ára reynslu af öldrunarþjónustu og er Hrafnista í dag stærsti aðilinn í rekstri hjúkrunarheimila og dagdvala hér á landi. Nú starfrækir Hrafnista rúmlega 600 hjúkrunarrými á sex hjúkrunarheimilum í fimm sveitarfélögum. Dagdvalir á vegum Hrafnistu eru nú þrjár en í byrjun næsta árs verður sú fjórða opnuð. Dagdvölin á Sléttuveginum verður því fimmta dagdvölin á vegum Hrafnistu.

Á nýja hjúkrunarheimlinu á Sléttuvegi, sem stefnt er að opna á seinni hluta næsta árs, verður rík áhersla verður lögð á sjálfsákvörðunarrétt og þátttöku íbúa. Starfsfólk og íbúar vinna saman að því að skapa heimilislegt, hlýlegt og virkt samfélag.

 

Viðstödd undirritunina voru, í öftustu röð frá vinstri: Pétur Magnússon, forstjóri Hrafnistuheimilanna, Ágúst Sigurðsson forstjóri Happdrættis DAS, Jónas Garðarsson, stjórnarmaður í Sjómannadagsráði og Jón Grétar Magnússon, verkefnistjóri Sléttuvegar hjá Sjómannadagsráði. Í fremri röð frá vinstri eru: Regína Ásvaldsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, Berglind Magnúsdóttir, skrifstofustjóri skrifstofu öldrunar- og húsnæðismála Reykjavík, María Fjóla Harðardóttir framkvæmdastjóri Heilbrigðissviðs Hrafnistuheimilanna og Sigurður Garðarsson framkvæmdastjóri Sjómannadagsráðs. Fremstir sitja svo Dagur B Eggertsson borgarstjóri og Hálfdan Henrysson formaður stjórnar Sjómannadagsráðs.

Framkvæmdin skoðuð og rýnt í teikningarnar.

Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, skrifar undir samninginn við Sjómannadagsráð ásamt Hálfdani Henryssyni formanni stjórnar Sjómannadagsráðs.

Pin It on Pinterest

Share This