Sjómannadagurinn verður haldinn hátíðlegur sunnudaginn 4. júní nk. Mikil spenna ríkir í herbúðum þeirra sem skipuleggja daginn en það eru Brim, Faxaflóahafnir og Sjómannadagsráð sem standa að skemmtuninni við Reykjavíkurhöfn á Granda.

“Við ætlum að tjalda öllu til eins og í fyrra og bjóða upp á tvö svið, annað við Brim og hitt á miðjum Grandagarði. Þar stíga á stokk m.a. tónlistarfólkið Gugusar, Daniil, GDRN og sjálfur Jón Jónsson tekur ekki bara lagið heldur er skemmtanastjóri Sjómannadagsins í Reykjavík. Harmonikkuleikurinn verður á sínum stað og kynnar á litla sviðinu eru þau Begga og Mikki sem margir þekkja úr Krakkakvissi og Krakkaskaupinu. Lalli töframaður verður á litla sviðinu og BMX brós við það stóra. Þá er koddaslagurinn, reiptog, sigling með varðskipi, bryggjusprellið, klifur- og kraftakeppni og fiskisúpusmakk að sjálfsögðu á sínum stað í ár sem og endranær”, segir Aríel Pétursson, formaður Sjómannadagsráðs

Heiðrun sjómanna í beinni útsendingu og óskalögin strax á eftir

Dagurinn hefst klukkan 10 í Fossvogskirkjugarði þegar lagður er blómsveigur á leiði týnda sjómannsins en skemmtidagskráin hefst með skrúðgöngu frá Hörpu kl. 12.30 og endar á Granda þar sem við tekur fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Heiðrun sjómanna fyrir farsæl félags- og sjómannsstörf og björgun mannslífa fer fram í Hörpu kl. 14 og verður sú athöfn í beinni útsendingu á Rás 1. Einn vinsælasti útvarpsþáttur allra tíma, Á frívaktinni (Óskalög sjómanna) verður síðan endurvakinn kl. 15, en það er sjálf Svanhildur Jakobsdóttir sem hefur umsjón með þættinum. “Það er gaman að RÚV ætli að endurvekja þennan geysivinsæla þátt aftur í ár og vonum við að þátturinn slái aftur í gegn eins og í fyrra. Annars mælum við með að fólk kynni sér dagskrána vel á sjomannadagurinn.is eða á Fésbókarsíðu Sjómannadagsins í Reykjavík”, segir Elísabet Sveinsdóttir, kynningar- og markaðsstjóri.

Pin It on Pinterest

Share This