Hátíðarhöld Sjómannadagsins í Reykjavík og Hafnarfirði 2. júní 2019 fóru fram með hefðbundnum hætti. Hátíð hafsins sem haldin var 1. og 2. júní á Grandagarði fór vel fram og hefur hátíðin stækkað og eflst með hverju árinu. Sjómannadagsráð vill þakka styrktaraðilum hátíðarinnar, Faxaflóahöfnum og HB Granda, sem og Concept Events sem skipuleggur hátíðina.

Á Sjómannadaginn í Reykjavík, hófst dagskráin með stuttri athöfn við Fossvogskirkju, þar sem heiðursvörður frá Landhelgisgæslunni lagði krans að Minningaröldum Sjómannadagsráðs. Því næst er hátíðarmessa í Dómkirkjunni. Eftir hádegi var dagskrá á Grandagarði þar sem Hilmar Snorrason skipstjóri og skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna, og Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra, fluttu erindi. Hálfdan Henrysson, stjórnarformaður Sjómannadagsráðs heiðraði þá Kristján S Birgisson, Elís Heiðar Ragnarsson og Guðjón Ármann Einarsson. Óskum við þeim innilega til hamingju. Karlakór Kjalnesinga flutti nokkur lög. Kynnir var Gerður G. Bjarklind.

Í Hafnarfirði var dagskráin sömuleiðis með hefðbundnum hætti. Um morguninn var athöfn við Víðistaðakirkju þar sem lagður var krans að Altari sjómannsins, sem er minnisvarði um horfna sjómenn, eftir Erling Jónsson myndhöggvara, reist 1993 og var það Ásta Magnúsdóttir ekkja Júlíusar Sigurðssonar skipstjóra sem bar kransinn. Mikið var um að vera við smábátahöfnina og á bryggjunum þar í kring. Karel Karelsson og Lúðvík Geirsson heiðruðu þá Jón Kristinn Jónsson, Ara E. Jónsson, Gabríel Guðmundsson og Gunnar Jónsson.

Vill Sjómannadagsráð þakka þeim ótalmörgu sem leggjast á eitt við að gera þennan dag eins veglegan og raun er á.

 

Guðni Th. Jóhannesson, forseti og Agnes M Sigurðardóttir biskup í hátíðarmessu vegna Sjómannadagsins 2019

Guðni Th. Jóhannesson, forseti og Agnes M Sigurðardóttir biskup í hátíðarmessu vegna Sjómannadagsins 2019

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra

Hilmar Snorrason skipstjóri og skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna

Hilmar Snorrason skipstjóri og skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna

Hálfdan Henrysson formaður Sjómannadagsráðs

Hálfdan Henrysson formaður Sjómannadagsráðs

Hálfdan Henrysson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Gerður G Bjarklind, Hilmar Snorrason, Kristján S Birgisson, Elís Heiðar Ragnarsson, Guðjón Ármann Einarsson og Sigurður Garðarsson

Hálfdan Henrysson, Guðmundur Ingi Guðbrandsson, Gerður G Bjarklind, Hilmar Snorrason, Kristján S Birgisson, Elís Heiðar Ragnarsson, Guðjón Ármann Einarsson og Sigurður Garðarsson

Heiðraðir á Sjómannadaginn 2019: Kristján S Birgisson, Elís Heiðar Ragnarsson og Guðjón Ármann Einarsson

Heiðraðir á Sjómannadaginn 2019: Kristján S Birgisson, Elís Heiðar Ragnarsson og Guðjón Ármann Einarsson

Frá vinstri: Lúðvík Geirsson, Karel Karelsson, Ólöf Valdimarsdóttir, Jón Kristinn Jónsson, Ari E. Jónsson, Gabríel Guðmundsson, Auðbjörg Hannesdóttir, Karólína Jósepsdóttir og Gunnar Jónsson

Frá vinstri: Lúðvík Geirsson, Karel Karelsson, Ólöf Valdimarsdóttir, Jón Kristinn Jónsson, Ari E. Jónsson, Gabríel Guðmundsson, Auðbjörg Hannesdóttir, Karólína Jósepsdóttir og Gunnar Jónsson

Ásta Magnúsdóttir ekkja Júlíusar Sigurjónssonar lagði blómsveig að Altari sjómannsins, minnismerki um horfna sjómenn við Víðistaðakirkju. Verkið er eftir Erling Jónsson myndhöggvara og var reist 1993

Ásta Magnúsdóttir ekkja Júlíusar Sigurðssonar lagði blómsveig að Altari sjómannsins, minnismerki um horfna sjómenn við Víðistaðakirkju. Verkið er eftir Erling Jónsson myndhöggvara og var reist 1993

Liðin sem kepptu í kappróðrinum

Liðin sem kepptu í kappróðrinum

Pin It on Pinterest

Share This