Stjórn Sjómannadagsráðs upplýsir hér með að Pétur Magnússon hefur óskað eftir að láta af störfum sem forstjóri Hrafnistu eftir tólf ára farsæl störf fyrir Sjómannadagsráð höfuðborgarsvæðisins við daglega stjórn og mikla uppbyggingu og umbætur í starfsemi Hrafnistu sem leiðandi fyrirtækis á sviði öldrunarþjónustu hér á landi. Pétur hverfur til annarra spennandi starfa og hefur stjórn Sjómannadagsráðs falið Sigurði Garðarssyni, framkvæmdastjóra Sjómannadagsráðs og Naustavarar, og Maríu Fjólu Harðardóttur framkvæmdastjóra heilbrigðissviðs Hrafnistu, að taka tímabundið við starfinu og munu þau leiða áframhaldandi starfsemi, þróun og uppbyggingu Hrafnistuheimilanna sem eru alls átta að tölu á suðvesturhorni landsins.

Stjórn Sjómannadagsráðs er afar þakklát Pétri fyrir framlag hans í þágu félagsins og fyrir þann árangur sem hann hefur náð í starfi sem bætt hafa gæði öldrunarþjónustu í landinu og óskar ráðið honum alls velfarnaðar á nýjum vettvangi. Jafnframt er stjórn ráðsins þess fullviss að undir stjórn Sigurðar Garðarssonar og Maríu Fjólu Harðardóttur í starfi forstjóra verði engir hnökrar á daglegri og mikilvægri starfsemi Hrafnistu og því skipulagi sem þróað hefur verið til að hámarka gæði þjónustunnar í þágu íbúa Hrafnistu og þeirra fjölmörgu sem sækja þangað daglega þjónustu.

Stjórn Sjómannadagsráðs

Pin It on Pinterest

Share This