Í lögum Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins kveður á um að halda skuli upp á Sjómannadaginn  til stuðla að því að hann skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi, efla samhug meðal sjómanna og auka samstarf milli hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar.

Heiðra skuli minningu látinna sjómanna og minnast sérstaklega þeirra sem látist hafa við störf sín en einnig heiðra fyrir björgun mannslífa og farsæl félags og sjómannsstörf.

Seinast en ekki síst er haldið upp á Sjómannadaginn til að kynna þjóðinni áhættusöm störf sjómanna og mikilvægi starfanna í þágu þjóðfélagsins.

Sjómannadagurinn 2019 ber upp á sunnudaginn 2. júní. Hefðbundin dagskrá hefst kl. 10 við minningaröldur Sjómannadagsins við Fossvogskirkju þar sem flutt verða minningarorð og bæn. Heiðursvörð standa starfsmenn Landhelgisgæslunnar. Kl. 11 verður haldin Sjómannadagsguðsþjónusta í Dómkirkjunni.

Hátíðardagskrá sjómannadagsins verður að venju haldin kl. 14 á Grandagarði og send út í beinni útsendingu á Rás 1. Heiðrun sjómanna, ávörp og tónlistaratriði frá Karlakór Kjalnesinga. Kynnir er Gerður G. Bjarklind.

       

Pin It on Pinterest

Share This